toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FERSKVATN

ANNAÐ

Copadichromis verduyne "Deep Blue” (Mbamba Bay)

Verduyne Deep Blue “Mbamba Bay”

Verduyne Deep Blue “Mbamba Bay”
Copadichromis verduyne “Deep Blue” (Mbamba Bay)

Stærð: 12-13 cm.

Kynin: Karlfiskurinn er djúpblár með gulum yrjum á búk og sporði. Nokkur litamunur er á hængum eftir staðsetningu í vatninu og ýmis undirafbrigði til (Kirondo, Lundo, Puulu). Hrygnan er silfurgrábrún með þrjá dökka bletti (neðri mynd).

Um fiskinn: Þessi fallegi fiskur eignar sér yfirráða- svæði sem gerir það erfitt að setja tvo karlfiska í sama búr. Þarf stórt búr með mörgum steinum og felustöðum til að líkja eftir náttúrulegum aðstæðum hans. Finnst við Mara Rocks í Mbamba Bay á norðausturströnd Malavívatns (neðsta mynd). Skyldur C. azureus, C. “Kawanga”, C. verduyni, C. verduyni “Northern”.

Æxlun: Þessir fiskar eru munnalarar. Þess vegna þurfa hrygnur og seiði að fá skjól í hellum og holum.

Búrstærð: 300 l

Hitastig:  28°C

Sýrustig (pH): 8

Harka (gH): 22

Fóður: Dafnía, fullvaxin artemía, þurrfóður.

Verduyne Deep Blue “Mbamba Bay”1
Verduyne Deep Blue “Mbamba Bay”2
botn