|
|
Verduyne Northern Copadichromis verduyne “Northern”
Stærð: 10-12 cm.
Kynin: Karlfiskurinn er að mestu ljósblár með gulum yrjum á kvið. Nokkur litamunur er á hængum eftir staðsetningu í vatninu og ýmis undirafbrigði til (Mbamba, Lumbira). Hrygnan er silfurgrábrún með þrjá óskýra dökka bletti (mið mynd).
Um fiskinn: Þessi fallegi fiskur eignar sér yfirráða- svæði sem gerir það erfitt að setja tvo karlfiska í sama búr. Þarf stórt búr með mörgum steinum og felustöðum til að líkja eftir náttúrulegum aðstæðum hans. Heldur sér á 5-30 m dýpi. Finnst við Nkanda á norðausturströnd Malavívatns (neðsta mynd). Skyldur C. azureus, C. verduyni “Deep Blue”, C. “Kawanga,” C. verduyni.
Æxlun: Þessir fiskar eru munnalarar. Þess vegna þurfa hrygnur og seiði að fá skjól í hellum og holum.
Búrstærð: 300 l
Hitastig: 28°C
Sýrustig (pH): 8
Harka (gH): 22
Fóður: Dafnía, fullvaxin artemía, þurrfóður.
|
|