toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FERSKVATN

ANNAÐ

Copadichromis verduyne "Northern” (Lumbira)

Verduyne Northern (Lumbira)

Verduyne Northern (Lumbira)
Copadichromis verduyne “Northern” (Lumbira)

Stærð: 10-12 cm.

Kynin: Karlfiskurinn er að mestu ljósblár með gulum yrjum á kvið. Nokkur litamunur er á hængum eftir staðsetningu í vatninu og ýmis undirafbrigði til (Mbamba). Hrygnan er silfurgrábrún og oft með þrjá óskýra dökka bletti (mið mynd).

Um fiskinn: Þessi fallegi fiskur eignar sér yfirráða- svæði sem gerir það erfitt að setja tvo karlfiska í sama búr. Þarf stórt búr með mörgum steinum og felustöðum til að líkja eftir náttúrulegum aðstæðum hans. Heldur sér á 5-30 m dýpi. Finnst við Lumbira á norðausturströnd Malavívatns (neðsta mynd). Skyldur C. azureus, C. verduyni, C. verduyni “Deep Blue”, C. “Kawanga”.

Æxlun: Þessir fiskar eru munnalarar. Þess vegna þurfa hrygnur og seiði að fá skjól í hellum og holum.

Búrstærð: 300 l

Hitastig:  28°C

Sýrustig (pH): 8

Harka (gH): 22

Fóður: Dafnía, fullvaxin artemía, þurrfóður.

Verduyne Northern (Lumbira)1
Verduyne Northern (Lumbira)2
botn