toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FERSKVATN

ANNAÐ

Cyphotilapia frontosa

cyphotilapia_frontosa

Frontosa (Humphead Cichlid)
Cyphotilapia frontosa

Stærð: 30 cm.

Kynin: Kyngreining erfið. Hrygnan er yfirleitt minni, um 25 cm, en hængurinn 30 cm og uggarnir lengri og oddmjórri. Bæði kynin fá einkennandi hnúð á höfði með aldrinum, hnúður hængsins þó sýnu stærri.

Um fiskinn: Frontósan er stór og falleg siklíða. Hún hefur heilmikinn persónuleika og plummar sig best í 5-6 saman. Gott að hafa einn hæng og 4-5 hrygnur. Hængar slást um hylli hrygnanna. Vilja hafa gott pláss, stórgrýtt búr með sendnum botni. Lætur yfirleitt búraplöntur vera. Þolir illa mikil vatnsskipti - 10-15% vatnsskipti ákjósanlegust. Nokkur afbrigði til. Finnst á allt að 60 metra dýpi í Tanganyikavatni. Getur ekki verið með litlum fiskum sem hún getur lagt sér til munns. Fiskar undir 7 cm eru bara matur í augum fullorðinnar frontósu. Þetta eru langlífir fiskar - geta orðið yfir 20 ára.

Æxlun: Frekar auðveldur í hrygningu. Munnklekjari eins og malavísiklíður. Fiskarnir verða ekki kynþroska fyrr en 3-4 ára gamlir. Hefðbundin hrygning. Hrognafjöldi 20-80. Meðganga 5 vikur. Hrygnan gætir unganna í nokkra daga eftir að hún sleppir þeim.

Búrstærð: 500 l

Hitastig:  24-26°C

Sýrustig (pH): 7,5-9

Harka (gH): 14-20

Fóður: Dafnía, fullvaxinn artemía, kjötmeti.

Verð: 8 cm 4.990 kr. 10-12 cm 5.990 kr.

Cyphotilapia frontosa_fry
Cypho frontosa
botn