|
Dawn Tetra Aphyocharax paraguayensis
Stærð: 3,1 cm.
Kynin: Karlfiskurinn er spengilegri en kerlan.
Um fiskinn: Falleg smátetra og góður samfélagsfiskur. Kemur vel saman við aðra rólega fiska og er bestur í 5-6 fiska torfu. Þetta er nokkuð harðgerður og vel sýnilegur fiskur.
Uppruni: S-Ameríka: vatnasvæði Paraguay-fljóts.
Æxlun: Stráir eggjum á hefðbundinn tetru máta. Frekar auðveldur í ræktun og auðvelt að þekkja kynin sundur. Best að hafa þéttan gróður til að hrygna í og fjarlægja foreldrana eftir got. Hrognin klekjast út á 24-30 tímum og seiðin eru frísyndandi eftir nokkra daga.
Búrstærð: 60 l
Hitastig: 22-27°C
Sýrustig (pH): 5,5-7,5
Harka (gH): 15
Fóður: Þurrfóður, blóðormar og hvers kyns smáormar.
|
|