|
 |
|
Kiwinge Dimidochromis kiwinge
Stærð: 25-30 cm
Kynin: Karlfiskurinn er blár og sterklega byggður. Það vottar fyrir dökku láréttu bandi hjá báðum kynjum en það er meira áberandi hjá hrygnunni sem er annars silfurgræn á litinn (mið mynd).
Um fiskinn: Þessi fiskur eignar sér yfirráðasvæði sem hann ver af miklu harðfylgi. Þarf stórt búr með mörgum steinum og felustöðum til að umhverfið líkist náttúrlegu heimili hans. Sómir sig vel í búri fullum af Vallisneria. Heldur sig í grynningum upp að 15 m dýpi. Ránfiskaeðlið er sterkt í náttúrunni en minnkar til muna í heimabúri þar sem hann er fóðraður reglulega. Fiskurinn finnst víðast hvar í Malavívatni td. við Nkhata Bay (neðsta mynd til hægri).
Æxlun: Þessir fiskar eru munnalarar. Þess vegna þurfa hrygnur og seiði að fá skjól í hellum og holum (neðst til vinstri).
Búrstærð: 1.000 l
Hitastig: 28°C
Sýrustig (pH): 8,2
Harka (gH): 15
Fóður: Þurrfóður, kjötmeti.
|
|