|
|
Strigatus Dimidochromis strigatus
Stærð: 20-25 cm
Kynin: Karlfiskurinn er fallega sjálflýsandi grænblár og sterklega byggður. Hann hefur rauðan blett aftan við tálknin og gotraufarugginn er skær appelsínugulur. Það vottar fyrir dökku láréttu bandi hjá báðum kynjum en þau eru meira áberandi hjá hrygnunni sem er annars silfurgrá á litin (mið mynd).
Um fiskinn: Þessi ránfiskur eignar sér yfirráðasvæði sem hann ver af miklu harðfylgi. Þarf stórt búr með mörgum steinum og felustöðum til að umhverfið líkist náttúrulegu heimili hans. Sómir sig vel í búri fullum af Vallisneria. Heldur sig á sendnum grynningum niður að 10 m dýpi. Ránfiskaeðlið hverfur næstum alveg í heimabúri þar sem hann fær reglulega að éta. Fiskurinn finnst víðast hvar í Malavívatni.
Æxlun: Þessir fiskar eru munnalarar. Þess vegna þurfa hrygnur og seiði að fá skjól í hellum og holum.
Búrstærð: 600 l
Hitastig: 28°C
Sýrustig (pH): 8,2
Harka (gH): 15
Fóður: Þurrfóður, kjötmeti.
|
|