|
Ducorps’ Cockatoo Cacatua ducorpsii
Lýsing: Hvítur;: höfuð- og stundum bringufjaðrir föl- bleikar í rót en ekki sýnilegt; undirhlið vængja og stélfjaðra fölgul; kambur breiður og ávalur; augnhringur gráhvítur; augu brún-svört; fætur gráir; goggur gráhvítur.
Óþroskaðir fuglar líkjast karlfuglinum en fjaðurhamur ljósgráleitur og augu dökk; kvenfuglinn fær fullorðins augnlit 2-3 ára gamall.
Lengd: 31 cm.
Lífslíkur: 40-60 ár.
Um kynin: Kvenfugl eins og karlfugl en yfirleitt smærri og með rauðleit augu.
Uppruni: Austur-Solómonseyjar frá Bougainville til Malaita, en finnst ekki San Cristóbal eyjunum.
Um fuglinn: Þetta er í hópi minni kakadúa og einn sá hljóðlátasti. Stutt er síðan að hann “uppgötvaðist” sem gæludýr og er núna mjög eftirsóttur vegna þess hve rólyndur hann er og kelinn. Þetta er bráðgáfaður fugl og því auðtaminn, skemmtilegur, félagslyndur og fyndinn. Einstakur fugl getur verið hávær, en flestir láta í sig heyra kvölds og morgna eins og aðrir páfagaukar. Þeir eru þó ekki eins háværir og stóru kakadúarnir og því góður valkostur. Þetta eru ekki bestur talfuglarnir en sumir verða góðir talarar. Semur ágætlega við aðra kakadúa. Naga mikið og þurfa því mikið af sterkum greinum.
Hávaðasemi: Í meðallagi.
Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauðsynlegt.
Staða í dag: CITIES II. Frekar algengur.
Verð: Ótaminn 220.000 kr. Handmataður 380.000 kr.
|
|