toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FERSKVATN

ANNAÐ

Dwarf Gourami

Dwarf Gourami
Colisa lalia

Stærð: 8,8 cm.

Kynin: Karlfiskurinn er stærri og spengilegri en kerlan og mun litmeiri. Hængurinn er rauður með þéttum, bláum þverböndum (mið mynd til vinstri) en hrygnan silfurlituð og fölum þverböndum. Nokkur litarbrigði til m.a. Blue Dwarf (efsta mynd), Cobalt Blue Dwarf (neðsta mynd), Sunset Dwarf (mið mynd til hægri).

Um fiskinn: Falleg og mjög vinsæl gúramítegund. Hinn ægifagri hængur er sífellt að gera sig til við hrygnuna og býr oft til flothreiður til að hrygna í. Hann getur verið nokkuð aðgangsharður við hrygnuna og stundum við aðra fiska sem þvælast fyrir. Hentar ágætlega stakur eða í pörum. Gengur með flestum, tetrum og mörgum minni börbum, en síður með nörturum. Góður samfélagsfiskur sem hentar vel fyrir byrjendur. Harðgerður og sýnilegur.

Uppruni: Asía: Pakístan, Indland og Banglades.

Æxlun: Hængurinn býr til flothreiður utan um fljótandi gróðurleifar. Hann lokkar síðan hrygnuna til sín og stingur eggjunum upp í hreiðrið eftir hrygningu. Síðan rekur hann hrygnuna burt og gætir hreiðursins. Hrognin klekjast út á rúmum sólarhring við 27-28°C hita. Seiðin eru agnarsmá og hanga í yfirborðinu meðan þau nærast á kviðpokanum. Lækka þarf vatnsborðið niður í 10-15 cm til að þau drukkni ekki. Best er síðan að fjarlægja hænginn. Seiðin nærast fyrst á harðsoðinni eggjarauðu en síðan á dafníu og artemíu. Þau eru frísyndandi u.þ.b. viku frá klaki.

Búrstærð: 60 l

Hitastig: 25-28°C

Sýrustig (pH): 6-8

Harka (gH): 5-19

Fóður: Þurrfóður, blóðormar og hvers kyns smáormar.

Verð: Red Dwarf: 990 kr;
         Blue Dwarf: 1.090 kr;
         Cobalt Blue Dwarf: 1.090 kr;
         Sunset Dwarf: 1.090 kr

gourami_neon_blue_male
Sunset Gourami
cobalt blue dwarf
botn