toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FUGLAR

ANNAÐ

Elenora Cockatoo

Elenora Cockatoo
Cacatua galerita elenora

Lýsing: Eins og C. g. triton nema smærri og með minni gogg.

Óþroskaðir fuglar með dökk augu hjá báðum kynjum; kvenfuglar fá fullorðinslit 2-3 ára; mjög ungir fuglar með fölgráleitan blæ á hvirfli, baki og vængblöðkum.

Lengd: 44 cm.

Lífslíkur: 70-100 ár.

Um kynin: Kvenfugl eins og karlfugl en augu rauð- brún.

Uppruni: Aru-eyjar, Indónesíu; hefur verið sleppt á Kai-eyjum.

Um fuglinn: Fallegur og gáfaður fugl sem þykir gaman að sýna sig. Hann er félagslyndur, ljúfur og athafnasamur og afburðagóður talfugl. Hann er ekki eins þurftafrekur og margir aðrir kakadúar. Þarf nóg að naga, enda goggurinn afar kröftugur.

Hávaðasemi: All hávær, einkum á morgnana.

Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauðsynlegt.

Staða í dag: CITIES II. Frekar algengur.

Verð: Ótaminn 230.000 kr. Handmataður 400.000 kr.

a_elenora

Smelltu á myndina til að fá fleiri myndir

Undirafbrigði:
Cacatua galerita fitzroyi
Cacatua galerita galerita
Cacatua galerita triton

botn