toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FUGLAR

ANNAÐ

Enn fleiri umsagnir - Cockatoo

fiðrildi skrifar: Ég er 25 ára gömul og á handmataðann dísargauk sem er um níu vikna gamall. Ég er aðeins búin að eiga hann í tvær æðislegar vikur.
Það hefur gengið vonum framar að kynnast fuglinum og allt gengið eins og í sögu.
Hún vill mikið vera hjá mér og ég gef henni alltaf að borða á hverjum morgni og á kvöldin. Hún er ekki aðeins háð mér þó að ég gefi henni alltaf að borða og er líka sátt við mann minn og son.
Ég get ekki nefnt neina galla við hana en kostirnir eru margir, hún er mjög gæf, skemmtileg og mjög svo forvitin.
Hún verður eflaust enn betri þegar ég hef náð að þjálfa hana og hún búin að venjast okkur enn frekar.
Hún er bara frábær.
http://www.tjorvar.is/spjall/viewtopic.php?p=250177&highlight=#250177

Helgas skrifar: Hæhæ ég er 11 ára og á dísargauk sem er 7 vikna og er handmataður, ég er búin að eiga hann í 1 viku og það gekk mjög að kynnast honum og hann var byrjaður að byðja um klór 3 daginn. Gallarnir við hann eru að hann kallar mjög mikið á mann þegar hann vill komast út úr búrinu. Og að hann stelst í allt sem maður borðar hvað sem það er. Kostirnir við hann eru að hann er mjög rólegur og kelinn og alls ekki árásagjarn.
http://www.tjorvar.is/spjall/viewtopic.php?t=20695&postdays=0&postorder=asc&start=0

botn