toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FUGLAR

ANNAÐ

Equadorian Buffon’s Macaw

Equadorian Buffon’s Macaw
Ara ambigua guayaquilensis

Lýsing: Eins og A. a. ambigua nema með mjórri gogg; neðri goggur 12 mm breiður; undirhlið flugfjaðra og stéls aðeins grænni. Talinn af sumum blendingur af A. a. ambigua og A. m. militaris.

Lengd: 85 cm.

Lífslíkur: 80-100 ár.

Um kynin: Lítill útlitsmunur. Karlar ögn stærri og hnakkafjaðrirnar með fölbláum blæ.

Uppruni: Vesturhluti Ekvadors og hugsanlega suðvesturhluti Kólombíu.

Um fuglinn: Frekar feiminn að eðlisfari en venst fljótt eigandanum. Hann nagar mjög mikið og þarf þykkar trjágreinar handa honum. Hann er harðger fugl eftir að hann aðlagast búrlífi. Honum semur vel við aðra ara utan fengitíma og hefur unun af að baða sig og vera úti í rigningu.

Hávaðasemi: Fremur hljóðlátur miðað við ara.

Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauðsynlegt.

Staða í dag: CITIES I. Í mikilli útrýmingarhættu vegna skógarhöggs og veiða.

ara_ambigua

Undirafbrigði:
Ara ambigua ambigua

botn