|
 |
|
Rostratus Fossorochromis rostratus
Stærð: 25-30 cm
Kynin: Nafnið merkir snoppulangur. Karlfiskurinn er svartur ofan á höfði og á hlið. Búkurinn er bláhvítur að ofan og sporðurinn fagurblár. Það vottar fyrir þrem doppuröðum en þær eru meira áberandi hjá hrygnunni sem er annars gulgráleit (mið mynd).
Um fiskinn: Þessi stórvaxni fiskur eignar sér yfirráða- svæði sem hann ver af miklu harðfylgi og hann hefur mikla matarlyst. Þarf stórt búr með mörgum steinum og felustöðum til að umhverfið líkist náttúrlegu heimili hans. Sómir sig vel í búri með Vallisneria. Heldur sig í sendnum svæðum allt niður á 20 m dýpi. Hann stingur sér gjarnan á kaf í sandinum þegar hann er óöruggur. Fiskurinn finnst víðast hvar í Malavívatni.
Æxlun: Þessir fiskar eru munnalarar. Þess vegna þurfa hrygnur og ungviði að geta leitað skjóls í hellum eða holum. Hrygnur geta átt allt upp í 60-80 seiði í einu.
Búrstærð: 1.000 l
Hitastig: 28°C
Sýrustig (pH): 8,2
Harka (gH): 18
Fóður: Þurrfóður, kjötmeti.
|
|