toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FERSKVATN

ANNAÐ

Giant Gourami

Giant Gourami
Osphronemus goramy

Stærð: 70 cm.

Kynin: Karlfiskurinn er stærri og spengilegri en kerlan og mun litsterkari. Hann er bleikbrúnn að grunnlit með dökkum þverböndum. Kerlan er daufari og silfurleitari.

Um fiskinn: Stór og mikil gúramítegund. Hængurinn er iðulega að gera sig til við hrygnuna og býr oft til flothreiður til að hrygna í. Hann getur verið nokkuð aðgangsharður við hana og stundum við aðra fiska sem þvælast fyrir. Hentar ágætlega stakur eða í pörum. Gengur eingöngu með stórum en rólegum fiskum. Minni fiska getur hann étið. Harðgerður og sýnilegur en þarf hreint vatn. Getur lifað nokkra stund upp úr vatni í röku lofti.

Uppruni: Asía: Súmatra, Borneó, Java, Malay-skagi, Tæland og Indókína (Mekong vatnasvæðið).

Æxlun: Hængurinn býr til flothreiður utan um fljótandi gróðurleifar. Hann lokkar síðan hrygnuna til sín og stingur eggjunum upp í hreiðrið eftir hrygningu. Síðan rekur hann hrygnuna burt og gætir hreiðursins. Hrognin klekjast út á rúmum sólarhring við 27-28°C hita. Seiðin eru agnarsmá og hanga í yfirborðinu meðan þau nærast á kviðpokanum. Lækka þarf vatnsborðið niður í 10-15 cm til að þau drukkni ekki. Best er síðan að fjarlægja hænginn. Seiðin nærast fyrst á harðsoðinni eggjarauðu en síðan á dafníu og artemíu. Þau eru frísyndandi u.þ.b. viku frá klaki.

Búrstærð: 1.000 l

Hitastig: 22-28°C

Sýrustig (pH): 6,5-8

Harka (gH): 4-25

Fóður: Þurrfóður, smáfiskar, froskdýr, blóðormar og alls kyns ormar.

Verð: 4-5” 2.990 kr.

Giant Gourami
Giant Gourami2
botn