|
Glowlight Tetra (Red Neon Tetra) Hyphessobrycon erythrozonus
Stærð: 3,3 cm.
Kynin: Karlfiskurinn er spengilegri en hrygnan og litmeiri.
Um fiskinn: Rauðneón tetran er falleg og róleg. Hún hefur rauða sjálflýsandi rönd eftir endilöngum búknum. Lyndir almennt vel við aðra rólega fiska og plummar sig best í torfu með 5 eða fleiri fiskum. Oft er heppilegast að hafa einn hæng á móti 4 hrygnum. Þetta er harðgerður fiskur sem syndir gjarnan um allt búrið, einkum í mið og efri vatnslögum og er vel sýnilegur.
Uppruni: S-Ameríka: Essequibo-fljót.
Æxlun: Stráir eggjum á hefðbundinn tetru máta. Frekar erfiður í ræktun. Best að hafa þéttan gróður til að hrygna í og fjarlægja foreldrana eftir got. Hrognin klekjast út á 24-30 tímum og seiðin eru frísyndandi eftir 3-4 daga.
Búrstærð: 80 l
Hitastig: 24-28°C
Sýrustig (pH): 6-8
Harka (gH): 5-12
Fóður: Þurrfóður, blóðormar. Ekki matvandur.
Verð: 350 kr.
|
|