toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FUGLAR

ANNAÐ

Golden Conure

Golden Conure (Queen of Bavaria´s Conure)
Aratinga guarouba

Lýsing: Almennur litur gulur; flugfjaðrir grænar, goggur ljós en með bláum blæ í rót; augnhringur hvítleitur; augu brún; fætur holdlitaðir.

Óþroskaðir fuglar með grænum skellum; ná fullorðinsham við 20 mánaða aldur.

Lengd: 34 cm.

Lífslíkur: 30-40 ár.

Um kynin: Litill munur á kynjum. DNA-greiningar þörf.

Uppruni: Norðaustur Brasilía í austurátt frá Rio Xingu, og Para til norðvestur Maranháo.

Um fuglinn: Hann er líflegur og forvitinn en getur verið feiminn í fyrstu. Hann nagar lítið og baðar sig sjaldan. Leikglaður fugl og hænist fljótt að eigandanum. Frekar kvefsækinn og hættir til að reyta sig ef honum leiðist. Þarf að hafa nóg til að dreifa athyglinni.

Hávaðasemi: Hávær.

Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauðsynlegt.

Staða í dag: CITIES I. Í mikilli útrymingarhættu vegna skógarhöggs.

ararajuba

Smelltu á myndina til að fá fleiri myndir

botn