|
Green-winged Macaw Ara chloropterus
Lýsing: Aðallitur rauður; hvítt bersvæði við augu og kinnar og rauðar fjaðurrákir á þvers og kruss; hnakkafjaðrir karlfugla stundum með grænleitri brún; miðvængblöðkur, innri aukaflugfjaðrir og axlarfjaðrir grænar; ytri vængblöðkur og ytri aukaflugfjaðrir bláar; ytri hluti aðalflugfjaðra blár; neðra bak, lendar, efri og neðri stélblöðkur bláar; aðalvængblöðkur bláar; efri hlið stéls dökkrauð með bláum endum; undirhlið stéls og vængja dökkrauð; kraftmikill ljós efri goggur með dökkar hliðar; neðri goggur svartur; augu fölgul; fætur dökkgráir.
Óþroskaðir fuglar með styttra stél; neðri goggur ljósari; augu brún.
Lengd: 90 cm.
Lífslíkur: Allt að því 100 ár.
Um kynin: Ekki hægt að sjá mun á kynjum, þó geta kvenfuglar verið hausmjórri.
Uppruni: A-Panama og NV-Kólombía; austan Andesfjalla frá austurhluta Kólombíu og Venesúela suður yfir Ekvador, Perú, Gvæjana, Súrínam og Frönsku Gvæjana til brasilísku héraðanna Parana og Mato Grosso, norður- og austurhluta Bólivíu, Paragvæ og argentíska héraðsins Formosa.
Um fuglinn: Grænvængjaði arnpáfinn er einkar gáfaður og forvitinn fugl, en ekki eins líflegur og flestir hinna arnpáfanna. Hann hefur sérlega gaman að samskiptum við mannfólkið. Hann er talinn gáfaðasti arnpáfinn og mjög fljótur að læra. Hann er ágætur talfugl og meðal stærstu arnpáfanna.
Hávaðasemi: Getur verið hávaðasamur.
Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauðsynlegt.
Staða í dag: CITIES II. Frekar sjaldgæfur víðast hvar en finnst enn í fornskógum S-Ameríku.
Verð: Ótaminn 220.000 kr. Handmataður 380.000 kr.
|
|