toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FUGLAR

ANNAÐ

Green Rosella

Platycercus_caladonicus1

Green Rosella
Platycercus caledonicus

Lýsing: Grænngulur-gulur á lit; enni rautt; kinna- blettur djúpblár; hnakki, efra bak og stærri axla- fjaðrir svartleitar með óreglulegri daufgrænni brún; bringa og kviður daufgulur; efri stélblöðkur og neðra bak dauf olivíugrænt; undirstélsblöðkur gulleitar neð rauðu ívafi; efri hlið miðstélfjaðra græn og ytri stélfjaðrir bláar með fölum endum; undirhlið stéls fölblá; goggur ljós-grár; augnhringur mjór og grár; augu brún; fætur gráir.

Óþroskaðir fuglar daufari í litum og yfirleitt grænni að sjá; bak með breiðri olivíugrænni brún; fölt band undir vængi; fá fullorðinsham um 15 mánaða aldur.

Lengd: 37 cm.

Lífslíkur: 30-35 ár.

Um kynin: Kvenfuglinn er að jafnaði minni með mjórra rautt ennisband; hals að mestu útþynntur appelsínugulur; minni og goggur mjórri.

Uppruni: Tasmanía og nokkrar stærri eyjar á Bass sundi.

Um fuglinn: Athafnasamur fugl. Hann verður harðger er hann aðlagast nýjum aðstæðum. Hefur gaman af að baða sig og nagar mikið og þarf því gott framboð af greinum. Hefur einnig gaman af að krafsa í jörð og þarf því reglulega ormahreinsun.

Hávaðasemi:  Miðlungs hávær-hávær.

Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauð- synlegt.

Staða í dag: CITIES II. Algengur.

Smelltu á myndina til að fá fleiri myndir

botn