|
Siklíður af Haplochromis ættinni þekkjast af vaxtarlaginu. Þær eru munnalarar, eins og flestar malavísiklíður, en flokkast ekki undir mbúnur. Þær verja svæði sitt af miklu harðfylgi. Karlfiskurinn er litmeiri en kvenfiskurinn. Haplochromis siklíður éta þörunga og smávatnadýr og verða sumar allstórar. Tímgunin er hefðbundin fyrir malavísiklíður. Karlinn finnur sér hrygningarstað og grefur niður á flatan stein. Síðan lokkar hann kerluna að með miklum tilþrifum en rekur hana síðan burt að hrygningu lokinni. Meðgangan er um 3 vikur og að því loknu sleppur kerlan seiðunum og skiptir sér lítið af þeim. Sumar tegundir finnast einnig í Viktoríu- og Tanganyikavatni.
|
|