toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FERSKVATN

ANNAÐ

Haplochromis latifasciatus

Zebra Obliquidens
Haplochromis latifasciatus

Stærð: 13 cm.

Kynin: Þekkjast á sebraþverböndunum. Karlfiskurinn er litskrúðugri en kerlan með sterka rauða og gula liti á kviði. Hrygnan er einnig nokkuð litsterk en ekki með jafnsterka liti og hún er einnig aðeins minni (neðri mynd).

Um fiskinn: Þessi fiskur eignar sér yfirráðasvæði en er ekki eins yfirgangssamur og aðrar viktoríuvatns- siklíður. Þarf gott búr með mörgum steinum og felustöðum til að umhverfið líkist náttúrulegu heimili hans. Best að hafa margar hrygnur á hvern karlfisk. Algengur meðal áhugamanna en því miður útdauður á Viktoríuvatnasvæðinu. Geta verið í búri með ýmsum rólegri malavísiklíðum ss. Aulonocara.

Æxlun: Þessir fiskar eru munnalarar. Þess vegna þurfa hrygnur og seiði að fá skjól í hellum og holum. Verða kynþroska um 8 mánaða gamlir. Ungir fiskar eru auðveldari í hrygningu. Stórar hrygnur geta gengið með allt að 50 seiði upp í sér og gæta ungviðisins í allt að því tvo mánuði eftir hrygningu.

Búrstærð: 200 l

Hitastig:  27°C

Sýrustig (pH): 8

Harka (gH): 22

Fóður: Þurrfóður, dafnía. Karótíntíkt fóður til að halda litum.

latifasciatan male
Latifasciatafemale
botn