|
Blue Victoria Mouthbrooder (Nublius) Haplochromis nubilius
Stærð: 10 cm.
Kynin: Karlfiskurinn er svarblár með rautt í sporði og kviðugga, en hrygnan er að mestu gulbrún (neðri mynd).
Um fiskinn: Þessi fiskur eignar sér yfirráðasvæði sem gerir það erfitt að setja tvo karlfiska í sama búr. Þarf stórt búr með mörgum steinum og felustöðum til að umhverfið líkist náttúrulegu heimili hans. Best að hafa margar hrygnur á hvern karlfisk. Getur drepið aðra hænga á tímgunartímanum. Finnst í víða á viktoríuvatnasvæðinu (vötnunum Viktoría, Kyoga, Nabugabo, Edward, George, Kachira, Navakali og Kijanebalola og fjölmörgum ám og lækjum við þessi vötn).
Æxlun: Þessir fiskar eru munnalarar. Þess vegna þurfa hrygnur og seiði að fá skjól í hellum og holum. Verða kynþroska um 8 mánaða gamlir. Ungir fiskar eru auðveldari í hrygningu. Stórar hrygnur geta gengið með allt að 50 seiði upp í sér og hugsa áfram um seiðin eftir að þeim er sleppt.
Búrstærð: 200 l
Hitastig: 21-30°C
Sýrustig (pH): 8
Harka (gH): 8-15
Fóður: Þurrfóður, dafnía.
|
|