toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FERSKVATN

ANNAÐ

Haplochromis sp. 44 "Red Tail"

Thick Skin
Haplochromis sp. 44 “Red Tail”

Stærð: 8 cm.

Kynin: Karlfiskurinn er mjög litsterkur en kerlan daufari og gylltari og getur vottað fyrir rauðum lit í uggum. Hún er einnig minni. Litirnir í hængnum geta breyst mjög eftir skap og í uppvexti.

Um fiskinn: Þessi fiskur eignar sér yfirráðasvæði og er býsna afbrigðissamur. Þarf minnst 200 lítra búr með mörgum steinum og felustöðum til að umhverfið líkist náttúrulegu heimili hans. Best að hafa margar hrygnur á hvern karlfisk. Algengur og vinsæll meðal áhugamanna. Finnst við norður og vesturströnd Viktoríuvatns. Gengur ekki með rólegri siklíðum.

Æxlun: Þessir fiskar eru munnalarar. Þess vegna þurfa hrygnur og seiði að fá skjól í hellum og holum. Verða kynþroska um 8 mánaða gamlir. Ungir fiskar eru auðveldari í hrygningu. Stórar hrygnur geta gengið með allt að 50 seiði upp í sér og gæta ungviðisins í allt að því tvo mánuði eftir hrygningu.

Búrstærð: 200 l

Hitastig:  27°C

Sýrustig (pH): 8

Harka (gH): 22

Fóður: Þurrfóður, dafnía. Karótíntíkt fóður til að halda litum.

sp44
botn