|
Hawk-headed Parrot Deroptyus accipitrinus
Lýsing: Vængirnir og lærin eru dökkgræn, séð neðanfrá eru vængirnir, bakið og stélið svört en að ofan er stélið þó grænt með bláum endum. Fjaðrirnar á búknum eru dökkrauðar með bláum endum. Ennið og kollurinn eru fölhvít, goggurinn er grásvartur, fæturnir bleikgráir og liturinn í augunum er gulur. Aðaleinkenni fálkapáfans eru hnakkafjaðrirnar sem eru lengri en venjulega á páfagaukum, og getur hann lyft þeim upp að vild.
Lengd: 35 cm.
Lífslíkur: 30-50 ár.
Um kynin: Eru afar svipuð í útliti.
Uppruni: Suður-Ameríka, Amasónsvæðið
Um fuglinn: Ef að fálkapáfanum finnst honum ógnað lyftast hnakkafjaðrirnar og mynda kraga. Hann er félagslyndur en getur verið árásargjarn, óútreiknan- legur og á til að verja yfirráðasvæði sitt (búrið).
Hávaðasemi: Afar hátt vein (heya, heya), og á mökunartímanum lyftir karlfuglinn hnakkafjöðrunum og blístrar hátt.
Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauðsynlegt.
Staða í dag: CITIES II. Frekar algengur.
Verð: Varppar 800.000 kr. Handmataður 500.000 kr.
|
|