|
Green Texas Cichlid (Pearlscale Cichlid) Herichthys carpinte
Stærð: 17 cm.
Kynin: Karlfiskurinn er litsterkari en hrygnan. Breiðleitur með þéttu, blágrænu stórperlumynstri og gulbrún augu. Uggarnir eru oddmjórri á hængnum.
Um fiskinn: Þessi fiskur eignar sér yfirráðasvæði sem gerir það erfitt að setja tvo karlfiska í sama búr. Stórt búr með mörgum steinum og felustöðum er best til að umhverfið líkist náttúrulegu heimili fisksins. Fallegur og harðgerður fiskur, en grimmlyndur eins og aðrar Ameríkusiklíður í sama stærðarflokki.
Æxlun: Það er auðvelt að fá þá til að fjölga sér. Parið velur sér stein eða holu og hrygnir þar. Þetta eru góðir foreldrar og verja ungviðið. Seiðin fara að synda um eftir rúma viku.
Uppruni: Norður-Ameríka: Atlantshafsmegin á vatna- svæði Panuco-fljóts og í Soto La Marina fljóti.
Búrstærð: 300 l
Hitastig: 23-33°C
Sýrustig (pH): 7-8
Harka (gH): 9-20
Fóður: Þurrfóður, dafnía, artemía.
Verð: 5 cm: 1.190 kr.
|
|