toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FERSKVATN

ANNAÐ

Herichthys pearsei

Pearsei Cichlid (Guatemala Pantano cichlid)
Herichthys pearsei

Stærð: 40 cm.

Kynin: Karlfiskurinn er litsterkari en hrygnan. Breið- leitur með áberandi súkkulaðibrúnan kvið. Uggarnir eru oddmjórri á hængnum.

Um fiskinn: Þessi fiskur eignar sér yfirráðasvæði sem gerir það erfitt að setja tvo karlfiska í sama búr. Stórt búr með mörgum steinum og felustöðum er best til að umhverfið líkist náttúrulegu heimili fisksins. Fallegur og harðgerður fiskur, en grimmlyndur eins og aðrar Ameríkusiklíður í sama stærðarflokki.

Æxlun: Það er auðvelt að fá þá til að fjölga sér. Parið velur sér stein eða holu og hrygnir þar. Þetta eru góðir foreldrar og verja ungviðið. Seiðin fara að synda um eftir rúma viku.

Uppruni: Mið-Ameríka: Atlantshafshlið suðausturhluta Mexíkó og norðurhluta Gvatemala.

Búrstærð: 600 l

Hitastig: 26-30°C

Sýrustig (pH): 7,5-8,5

Harka (gH): 3-14

Fóður: Þurrfóður, dafnía, artemía.

Verð: 5 cm: 1.790 kr; 10-12 cm: 8.490 kr.

Pearsei
herichthys_pearsei1

Copyright www.jjphoto.dk

botn