toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FUGLAR

ANNAÐ

Hispaniolan Amason

Hispaniolan Amason
Amazona ventralis

Lýsing: Fuglinn að mestu grænn; flestar fjaðrir með svartri brún; enni hvítt; hvirfill og efri hluti kinna daufblár; rósrauður kinnblettur; svartar eyrnafjaðrir; breytilegur hnotubrúnn blettur á kviði; aðal stélblöðkur og -flugfjaðrir bláar; aukastélfjaðrir og stærri vængblöðkur bláar með grænni brún til enda; undirstélsblöðkur gulgrænar; efri hluti stéls grænn með gulum endum; ytri stélfjaðrir með rauðri rót; augnhringur hvítleitur; goggur gulljósleitur; augu brún; fætur brúnleitir.

Lengd: 28 cm.

Lífslíkur: 50-70 ár.

Um kynin: Enginn sjáanlegur útlitsmunur. Kyngreindir með DNA-aðferð.

Uppruni: Haítí, Dóminíkanska lýðveldið og nokkrar nálægar eyjar; finnst núna í Púertó ríkó.

Um fuglinn: Hispaníóla amasoninn er fallegur fugl og frekar fágætur. Hann er sæmilegur talfugl. Harðgerður og forvitinn. Yfirleitt ekki árásargjarn utan varptímans. Frekar viðkvæmur fyrir kvefi.

Hávaðasemi:  Miðlungi hávær-hávær.

Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauð- synlegt.

Staða í dag: CITIES II. Nokkuð algengur en í hættu vegna skógarhöggs.

amazonaventralis
botn