toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FERSKVATN

ANNAÐ

Honey Gourami

Honey Gourami1

Honey Gourami (Sunset Gourami)
Trichogaster chuna

Stærð: 8 cm.

Kynin: Karlfiskurinn er stærri og spengilegri en kerlan og mun litmeiri. Hængurinn er yfirleit rauðbrúnn á búk með fagurbláan kvið og háls og gyllt bak (efsta mynd). Hrygnan er silfurleit (neðsta mynd). Mörg litarafbrigði eru til ss. Gold Honey Gourami (mið mynd).

Um fiskinn: Mjög falleg og vinsæl gúramítegund. Hængurinn er sífellt að gera sig til við hrygnuna og býr oft til flothreiður til að hrygna í. Hann getur verið nokkuð aðgangsharður við hrygnuna og oft sökum stærðar við aðra fiska sem þvælast fyrir. Hentar ágætlega stakur eða í pörum. Gengur með flestum, tetrum og mörgum minni börbum, en síður með nörturum. Ágætur samfélagsfiskur sem hentar vel fyrir byrjendur. Harðgerður og sýnilegur.

Uppruni: Asía: Indland og Banglades.

Æxlun: Hængurinn býr til flothreiður utan um fljótandi gróðurleifar. Hann lokkar síðan hrygnuna til sín og stingur eggjunum upp í hreiðrið eftir hrygningu. Síðan rekur hann hrygnuna burt og gætir hreiðursins. Hrognin klekjast út á rúmum sólarhring við 27-28°C hita. Seiðin eru agnarsmá og hanga í yfirborðinu meðan þau nærast á kviðpokanum. Lækka þarf vatnsborðið niður í 10-15 cm til að þau drukkni ekki. Best er síðan að fjarlægja hænginn. Seiðin nærast fyrst á harðsoðinni eggjarauðu en síðan á dafníu og artemíu. Þau eru frísyndandi u.þ.b. viku frá klaki.

Búrstærð: 100 l

Hitastig: 22-28°C

Sýrustig (pH): 6-8

Harka (gH): 5-19

Fóður: Þurrfóður, blóðormar og hvers kyns smáormar.

Verð: 890 kr.

trichogaster_chuna
Honey female
botn