|
Hyacinthine Macaw (Hyacinth Macaw) Anodorhynchus hyacinthinus
Lýsing: Kóbaltblár; gult bersvæði kringum gogg; vængir dökkblárri; stél og undirhliðar vængja svartleitar; goggur kraftmikill og svartleitur; augn- hringur gulur; augu dökkbrún; fætur dökkgráir.
Óþroskaðir fuglar með styttra stél; efri goggur ljósari.
Lengd: 100 cm.
Lífslíkur: Allt að því 100 ár.
Um kynin: DNA-greiningar þörf, en kvenfugl oftast aðeins minni.
Uppruni: Norður-Brasilía á svæðum meðfram norðurhluta Amazonfljóts og vestur til Rio Tapajós og suður yfir mið- og suðurhluta Brasilíu frá Piaui og suðurhluta Maranhaos yfir Goiás og vesturhluta Bahia til Minas Gerais og Mato Grosso; Austur-Bólivía og norðaustasti hluti Paragvæ.
Um fuglinn: Híasintu arnpáfinn þarfnast mikillar athygli, og það er vel hægt að þjálfa hann í að tala. Þó er hann ekki talinn vera góð eftirherma. Hann þarf mikið pláss, enda stór fugl. Hann er líflegur og forvitinn, leikglaður og skemmtilegur fugl. Nagar mjög mikið og þarf nóg af greinum. Getur auðveldlega bitið gegnum vírnet. Hefur unun af að baða sig og binst maka sínum mjög sterkum böndum. Getur verið með öðrum örum utan varptíma og jafnvel með smærri páfagaukum á varptíma.
Hávaðasemi: Getur verið hávær, einkum kvölds og morgna.
Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauðsynlegt.
Staða í dag: CITIES I. Í útrýmingarhættu vegna skógarhöggs og ofveiðis. Um 4.000 eftir í náttúrunni.
|
|