toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FERSKVATN

ANNAÐ

Hypsophrys nicaraguensis

Hypsophrys_nicaraguensis

Nicaraguan Cichlid (Moga)
Hypsophrys nicaraguensis

Stærð: 25 cm.

Kynin: Karlfiskurinn er litsterkari en hrygnan. Þekkist á dökku bandi eftir endilöngum fiskinum miðjum og stórum, svörtum bletti um miðjan búkinn. Enni mjög bogadregið og munnur lástæður. Hreystrið á hængnum með dökkri brún og dökkir flekkir í ugum. Höfuðið lýsandi grænblátt og búkur gullkoparlitaður. Uggarnir eru oddmjórri á hængnum.

Um fiskinn: Þessi fallegi fiskur eignar sér yfirráða- svæði sem gerir það erfitt að setja tvo karlfiska í sama búr. Stórt búr með mörgum steinum og felustöðum er best til að umhverfið líkist náttúrulegu heimili fisksins. Myndarlegur og harðgerður fiskur, en grimmlyndur eins og aðrar Ameríkusiklíður í sama stærðarflokki.

Æxlun: Það er auðvelt að fá þá til að fjölga sér. Parið velur sér stein eða holu og hrygnir þar. Þetta eru góðir foreldrar og verja ungviðið. Seiðin fara að synda um eftir rúma viku.

Uppruni: Mið-Ameríka: frá vatnasvæði San Juan (líka Nicaraguavatni) Atlantshafsmegin í Kostaríka og Níkaragúa til vatnasvæðis Matina fljóts í Kostaríka.

Búrstærð: 300 l

Hitastig:  23-33°C

Sýrustig (pH): 7-8
9
Harka (gH):
9-20

Fóður: Þurrfóður, dafnía, artemía.

Verð: 1.890 kr.

Hypsophrys Nic
botn