|
Illiger’s Macaw (Blue-winged Macaw) Ara maracana
Lýsing: Aðallitur grænn; enni, kviðhliðar og neðra bak rautt; hvirfill blár; höfuð, hnakki og kinnar grænbláar; vængir og aðalvængblöðkur bláar; vængbrún blágræn; undirvængblöðkur olívíugrænar; stélfjaðrir bláar með rauðbrúnum endum; undirhlið stéls olívíugul; goggur svartur; bersvæði kinna hvítt; augu rauðappelsínugul; fætur holdlitaðir.
Óþroskaðir fuglar með daufari fjaðrir og rauðappelsínugult frekar en rautt á sér; enni stundum án rauðra fjaðra; goggendar ljósir.
Lengd: 43 cm.
Lífslíkur: 50 ár.
Um kynin: Lítill útlitsmunur. Kvenfuglar eins og karlfuglar en með minna rautt á enni og kvið.
Uppruni: Austurhluti Brasilíu frá Para og Maranhao suður til Mato Grosso og Rio Grande do Sul, Paragvæ og norðausturhluti Argentínu.
Um fuglinn: Líflegur og forvitinn dvergari. Yfirleitt hlédrægur í fyrstu. Verður fljótt hændur eigandanum. Handaldir fuglar yfirleitt hljóðlátir og þægilegir. Harðgerðir eftir að þeir aðlagast búrlífi. Þurfa ekki mikla böðun. Naga mikið og þurfa ferskar greinar.
Hávaðasemi: Í meðallagi hávær.
Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauðsynlegt.
Staða í dag: CITIES I. Í útrymingarhættu vegna skógarhöggs, sérstaklega í Paragvæ.
|
|