|
Rusty Cichlid Iodotropheus sprengerae
Stærð: 7-9 cm
Kynin: Karlfiskurinn er ryðrauður með bláfjólubláum glampa en hrygnan meira rauðbrúnleit (mið mynd). Nefndur í höfuðið á frú Kappy Sprenger.
Um fiskinn: Þessi smáa mbúna virðist ekki eigna sér sérstakt svæði heldur halda sér í hópum. Þarf samt stórt búr með mörgum steinum og felustöðum til að umhverfið líkist náttúrlegu heimili hennar. Heldur sér á grýttum botni allt niður á meira en 40 m dýpi. Fiskurinn finnst í suður- og austurhluta Malavívatns við Boadzulueyju og Makokola Reef, ásamt Chinyankhwazi og Chinyamwesi.
Æxlun: Munnklekjari. Auðveldur í ræktun. Hrygnur og ungviði þurfa að geta leitað skjóls í hellum eða holum.
Búrstærð: 600 l
Hitastig: 28°C
Sýrustig (pH): 8,2
Harka (gH): 15
Fóður: Þurrfóður, kjötmeti.
|
|