|
Jobi Lory Lorius lory jobiensis
Lýsing: Ljósari útgáfa Meyer's Black-capped Lory; rauði litur aðeins fölari; undirvængblöðkur dökkbláar; hnakkaband dökkblátt; neðribringa og kviður dökkblár; bringa rauðbleik.
Lengd: 31 cm.
Lífslíkur: 30-35 ár.
Um kynin: Kvenfuglinn er með ljósblárra hnakka- band.
Uppruni: Jobi og Mios Num eyjar í Geelvink flóa.
Um fuglinn: Þessi hunagspáfi er mjög leikglaður og hvikur og ekki of hávær. Hann hefur gaman að blístri, smelluhljóðum og hvæsi. Hann er mjög greindur og forvitinn og sérlega athafnasamur. Þarf að hafa nóg fyrir stafni. Fljótur að aðlagast eiganda. Vill ferskar greinar og kalksteina.
Hávaðasemi: Frekar hljóðlátur.
Fóðrun: Fjölbreytt úrval af ávöxtum og grænmeti. Þarf einnig að fá blómasafa (nektar) og mikið af hreinum ávaxtasafa. Étur stundum fuglakorn og eggjafóður með. Fjölvítamín nauðsynlegt.
Staða í dag: CITIES II. Algengur víðast hvar.
|
|