|
Brown Julie Julidochromis dickfeldi
Stærð: 10 cm.
Kynin: Kyngreining er erfið. Uggarnir oddmjórri á hængnum. Hrygnan jafnan minni.
Um fiskinn: Þessi er árásargjarn á sína eigin tegund. Hann vill hafa nóg af steinum og grjóti kringum sig. Fallegur, ílangur fiskur með ljóshvítan grunnlit og 3 brúnleit langsömbönd. Bakugginn er hærri en gerist og gengur meðal júlla og nefið lengra. Lætur búraplöntur vera. Þolir illa mikil vatnsskipti - 10-15% vatnsskipti ákjósanlegust. Nokkur afbrigði til.
Æxlun: Það er erfitt að fá þá til að æxlast en þeir hrygna oftast í mjóum hellum eða sprungum. Hrygna í laumi. Mynda föst pör sem verja hrygningarsvæðið, hrognin og afkvæmin. Systkini úr eldra goti hugsa um yngri systkini. Hrognafjöldi 35-50. Pörun hefst um 11-12 mánaða aldur.
Búrstærð: 100 l
Hitastig: 27°C
Sýrustig (pH): 7,8-9
Harka (gH): 14-20
Fóður: Dafnía, fullvaxinn artemía, kjötmeti.
Verð: ”Kissi” 2.490 kr
|
|