toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FERSKVATN

ANNAÐ

Julidochromis marlieri

Marlier’s Julie
Julidochromis marlieri

Stærð: 13 cm.

Kynin: Kyngreining er erfið. Uggarnir oddmjórri á hængnum. Hrygnan jafnan stærri.

Um fiskinn: Þessi er árásargjarn á sína eigin tegund.  Hann vill hafa nóg af steinum og grjóti kringum sig. Fallegur, ílangur fiskur með hvítgulleitan grunnlit, 2-3 svört langsömbönd og þverbönd. Uggarnir  með dökkum skellum og gylltri brún. Einn af stærri júllunum í ættinni. Lætur búraplöntur vera. Þolir illa mikil vatnsskipti - 10-15% vatnsskipti ákjósanlegust. Ýmis staðbundin afbrigði til.

Æxlun: Frekar auðvelt að fá þá til að æxlast. Hrygna oftast í mjóum hellum eða sprungum. Hrygna í laumi. Mynda föst pör sem verja hrygningarsvæðið, hrognin og afkvæmin. Systkini úr eldra goti hugsa um yngri systkini. Hrognafjöldi 30-50. Hægvaxta seiði. Pörun hefst um 11-12 mánaða aldur.

Búrstærð: 150 l

Hitastig:  22-25°C

Sýrustig (pH): 7,5-9

Harka (gH): 19

Fóður: Dafnía, fullvaxinn artemía, kjötmeti.

Verð: 1.890 kr

Julidochromis marlieri
Jul marlieri
botn