|
 |
|
Ornate Julie (Yellow/Gold Julie) Julidochromis ornatus
Stærð: 8,5 cm.
Kynin: Kyngreining er erfið. Uggarnir oddmjórri á hængnum. Hrygnan jafnan minni.
Um fiskinn: Þessi er árásargjarn á sína eigin tegund. Hann vill hafa nóg af steinum og grjóti kringum sig. Fallegur, ílangur fiskur með gulleitan grunnlit, 2 svört langsömbönd og dökkar skellur eftir hrygg. Uggarnir gulleitir með mjórri, blárri brún. Einn minnsti júllinn í ættinni. Lætur búraplöntur vera. Þolir illa mikil vatnsskipti - 10-15% vatnsskipti ákjósanlegust.
Æxlun: Það er erfitt að fá þá til að æxlast en þeir hrygna oftast í mjóum hellum eða sprungum. Hrygna í laumi. Mynda föst pör sem verja hrygningarsvæðið, hrognin og afkvæmin. Systkini úr eldra goti hugsa um yngri systkini. Hrognafjöldi 30-50. Hægvaxta seiði. Pörun hefst um 11-12 mánaða aldur.
Búrstærð: 80 l
Hitastig: 22-24°C
Sýrustig (pH): 8-9
Harka (gH): 9-19
Fóður: Dafnía, fullvaxinn artemía, kjötmeti.
Verð: 2.290 kr
|
|