toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FERSKVATN

ANNAÐ

Julidochromis regani kipili

Striped Julie (Convict/Regan’s Julidochromis)
Julidochromis regani kipili

Stærð: 10-12 cm.

Kynin: Kyngreining er erfið. Uggarnir oddmjórri á hængnum. Hrygnan jafnan stærri.

Um fiskinn: Þessi er árásargjarn á sína eigin tegund.  Hann vill hafa nóg af steinum og grjóti kringum sig. Fallegur, ílangur fiskur með hvítgulan grunnlit og 2-4 svört langsömbönd. Uggarnir dökkir með hvítleitum doppum og fagurblárri brún, einkum kipili afbrigðið. Einn stærsti júllinn í ættinni. Lætur búraplöntur vera. Þolir illa mikil vatnsskipti - 10-15% vatnsskipti ákjósanlegust.

Æxlun: Það er frekar auðvelt að fá þá til að æxlast en þeir hrygna oftast í mjóum hellum eða sprungum. Hrygna í laumi. Mynda föst pör sem verja hrygningarsvæðið, hrognin og afkvæmin. Systkini úr eldra goti hugsa um yngri systkini. Hrognafjöldi 2-100. Pörun hefst um 11-12 mánaða aldur og best að hafa einungis eitt par í búri.

Búrstærð: 150 l

Hitastig:  27°C

Sýrustig (pH): 7,8-9

Harka (gH): 14-20

Fóður: Dafnía, fullvaxinn artemía, kjötmeti.

Verð: ”Kipili” 2.290-3.290 kr eftir stærð.

Jul regani Kipili
Jul regani
botn