toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FUGLAR

ANNAÐ

Kawall’s Amazon

Kawall’s Amazon
Amazona kawalli

Lýsing: Svipar til Mealy amasona í háttum og útliti. Almennt grænn; hnakki og bak blágrænt og hver fjöður með daufsvartri brún; vængbrún og undirstélsblöðkur gulgrænar; aðalflugfjaðrir fjólubláar með svörtum enda; rauður ferningur á ystu þrem aukaflugfjöðrum; stél grænt með grængulum enda; ytri stélfjaðrir rauðar í rótinni; ytri fjaðrir fjólubláar með ljósbláum enda; augnhringur grár; áberandi bert hvítt svæði upp við gogg (minnir á arnpáfa); efri goggur grár með ljósum hliðum; neðri goggur ljós; augun rauð; fætur gráir.


Lengd: 36 cm.

Lífslíkur: 60-70 ár.

Um kynin: Enginn sjáanlegur útlitsmunur. Kyngreindir með DNA-aðferð.

Uppruni: Þekkist aðeins frá efri hluta Rio Juru í Amazonas héraði og suður af Santarém héraði og Pará.

Um fuglinn: Harðger og hugaður fugl. Nagar mikið en gaðar sig sjaldan. Rólyndur og hefur sig lítið í frammi.

Hávaðasemi:  Getur verið hávaðasamur.

Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauð- synlegt.

Staða í dag: CITIES II. Lítið vitað um útbreiðslu hans.

kawal1

Smelltu á myndina til að fá fleiri myndir

botn