|
Kissing Gourami Helostoma temminki
Stærð: 30 cm.
Kynin: Karlfiskurinn er stærri og spengilegri en kerlan og aðeins litmeiri. Uggar eru oddhvassari en á hrygnunni. Hrygnan er silfurleitari en hængurinn bleikleitari.
Um fiskinn: Sérstæð og falleg gúramítegund. Kossa- gúraminn er sífellt að gera sig til við hrygnuna og býr oft til flothreiður til að hrygna í. Hann getur verið nokkuð aðgangsharður við hana og slæst við aðra hænga með því að munnhöggvast við þá eða bókstaflega kyssast. Hentar ágætlega stakur eða í pörum. Gengur með flestum miðlungsstórum, rólyndum fiskum en helst ekki nörturum. Hann verður allstór og ber að hafa það í huga við búraval. Hentar annars vel fyrir byrjendur. Harðgerður og sýnilegur.
Uppruni: Asía: Tæland til Indónesíu.
Æxlun: Hængurinn býr til flothreiður utan um fljótandi gróðurleifar. Hann lokkar síðan hrygnuna til sín og stingur eggjunum upp í hreiðrið eftir hrygningu. Síðan rekur hann hrygnuna burt og gætir hreiðursins. Hrognin klekjast út á rúmum sólarhring við 27-28°C hita. Seiðin eru agnarsmá og hanga í yfirborðinu meðan þau nærast á kviðpokanum. Lækka þarf vatnsborðið niður í 10-15 cm til að þau drukkni ekki. Best er síðan að fjarlægja hænginn. Seiðin nærast fyrst á harðsoðinni eggjarauðu en síðan á dafníu og artemíu. Þau eru frísyndandi u.þ.b. viku frá klaki.
Búrstærð: 400 l
Hitastig: 22-28°C
Sýrustig (pH): 6-8
Harka (gH): 5-19
Fóður: Þurrfóður, blóðormar og hvers kyns smáormar.
Verð: 1.390 kr.
|
|