|
|
Black Dorsal Labidochromis ”Black Dorsal”
Stærð: 9-11 cm
Kynin: Grunnliturinn er hvítur. Hængurinn er með þykkar svartar þverrákir og svarta brún á bak- ugganum og eins hrygnan, sem er að öðru leyti án búkmerkinga, en stundum glittir í fölar rákir (neðri mynd).
Um fiskinn: Hængurinn eignar sér svæði og ver gagnvart kynsystkinum. Þarf rúmgott búr með mörgum steinum og felustöðum til að umhverfið líkist náttúrlegu heimili hans. Heldur sér á grýttum botni allt niður á 35 m dýpi. Fiskurinn finnst í norðurhluta Malavívatns, einkum við Lundu-eyju í Mbamba Bay og Puulu-eyju hjá Liuli.
Æxlun: Munnklekjari. Auðveldur í ræktun. Hrygnur og ungviði þurfa að geta leitað skjóls í hellum eða holum.
Búrstærð: 300 l
Hitastig: 28°C
Sýrustig (pH): 8,2
Harka (gH): 20
Fóður: Þurrfóður, dafnía.
|
|