toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FERSKVATN

ANNAÐ

Labidochromis ”Blunt Nose”

Blunt Nose

Blunt Nose
Labidochromis ”Blunt Nose”

Stærð: 8-9 cm

Kynin: Hængurinn er allur ljósblár með svört þver- bönd en hrygnan grábrún og vottar aðeins fyrir þverrákum.

Um fiskinn: Fiskurinn er frekar ílangur. Tegundin er lítt þekkt og sjaldséð í heimabúrum. Hængurinn eignar sér svæði og ver gagnvart kynsystkinum. Þarf rúmgott búr með mörgum steinum og felustöðum til að umhverfið líkist náttúrlegu heimili hans. Heldur sér í grýttum grynningum á 3-10 m dýpi. Fiskurinn finnst í norðausturhluta Malavívatns út af strandlengjunni norður af Manda (Cove Mountain).

Æxlun: Munnklekjari. Auðveldur í ræktun. Hrygnur og ungviði þurfa að geta leitað skjóls í hellum eða holum.

Búrstærð: 300 l

Hitastig:  28°C

Sýrustig (pH): 8,2

Harka (gH): 20

Fóður: Þurrfóður, dafnía.

Blunt Nose1
botn