toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FERSKVATN

ANNAÐ

Labidochromis ”Deep Body” (“Lundo Blue”)

Deep Body

Deep Body
Labidochromis ”Deep Body” (“Lundo Blue”)

Stærð: 8-9 cm

Kynin: Hængurinn er blár með sver svört þverbönd og virkar næstum svartur að sjá með blá þverbönd. Hrygnan er grábrún.

Um fiskinn: Fiskurinn er frekar búkhár. Tegundin er lítt þekkt og sjaldséð í heimabúrum. Hængurinn eignar sér svæði og ver gagnvart kynsystkinum. Þarf rúmgott búr með mörgum steinum og felustöðum til að umhverfið líkist náttúrlegu heimili hans. Heldur sér í grýttum grynningum á 3-10 m dýpi. Fiskurinn finnst í norðvesturhluta Malavívatns út af strandlengjunni norður af Manda og Pombo Bay.

Æxlun: Munnklekjari. Auðveldur í ræktun. Hrygnur og ungviði þurfa að geta leitað skjóls í hellum eða holum.

Búrstærð: 300 l

Hitastig:  28°C

Sýrustig (pH): 8,2

Harka (gH): 20

Fóður: Þurrfóður, dafnía.

botn