toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FERSKVATN

ANNAÐ

Labidochromis ”Hongi” (“Puulu”)

Hongi
Labidochromis ”Hongi” (“Puulu”)

Stærð: 8-10 cm

Kynin: Hængurinn er ljósblár með sver svört þverbönd sem eru þéttari nær sporðinum. Hálsinn á honum er gulur og jafnvel appelsínugulur og bakugginn gulur. Hrygnan er gráleit eða brúnleit.

Um fiskinn: Hængurinn eignar sér svæði og ver gagnvart kynsystkinum. Þarf rúmgott búr með mörgum steinum og felustöðum til að umhverfið líkist náttúrlegu heimili hans. Heldur sér í grýttum grynningum á 2-5 m dýpi. Fiskurinn finnst í norðausturhluta Malavívatns við Tansaníuströnd td. út af Puulu, Hongi-eyju, Ngkuyo-eyju, Undu Point og í Mbamba Bay.

Æxlun: Munnklekjari. Auðveldur í ræktun. Hrygnur og ungviði þurfa að geta leitað skjóls í hellum eða holum.

Búrstærð: 300 l

Hitastig:  28°C

Sýrustig (pH): 8,2

Harka (gH): 20

Fóður: Þurrfóður, dafnía.

Hongi
Hongi1
Hongi2
botn