|
Hongi “Undu Point” Labidochromis ”Hongi” (Undu Point)
Stærð: 8-10 cm
Kynin: Hængurinn er blár með sver svört þverbönd einkum yfir baki. Hálsinn á honum er gulur og jafnvel appelsínugulur og bakugginn gulur. Hrygnan er gráleit eða brúnleit.
Um fiskinn: Hængurinn eignar sér svæði og ver gagnvart kynsystkinum. Þarf rúmgott búr með mörgum steinum og felustöðum til að umhverfið líkist náttúrlegu heimili hans. Heldur sér í grýttum grynningum á 2-5 m dýpi. Fiskurinn finnst í norðausturhluta Malavívatns við Tansaníuströnd td. út af Undu Point (neðri mynd).
Æxlun: Munnklekjari. Auðveldur í ræktun. Hrygnur og ungviði þurfa að geta leitað skjóls í hellum eða holum.
Búrstærð: 300 l
Hitastig: 28°C
Sýrustig (pH): 8,2
Harka (gH): 20
Fóður: Þurrfóður, dafnía.
|
|