toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FERSKVATN

ANNAÐ

Labidochromis ”Luhuchi”

Luhuchi

Luhuchi
Labidochromis ”Luhuchi”

Stærð: 8-9 cm

Kynin: Hængurinn er ljósblár með sver þverbönd. Hrygnan er grá- eða brúnleit og vottar aðeins fyrir mynstri.

Um fiskinn: Nýlega farið að flytja þess tegund inn til að hafa í fiskabúrum. Hængurinn eignar sér svæði og ver gagnvart kynsystkinum. Þarf rúmgott búr með mörgum steinum og felustöðum til að umhverfið líkist náttúrlegu heimili hans. Heldur sér í grýttum grynningum niður að 10 m dýpi. Fiskurinn finnst í norðausturhluta Malavívatns við Tansaníuströnd td. út af Luhuchi Rock í Mbamba Bay. Skyldur L. “Red Top Mbamba Bay.”

Æxlun: Munnklekjari. Auðveldur í ræktun. Hrygnur og ungviði þurfa að geta leitað skjóls í hellum eða holum.

Búrstærð: 300 l

Hitastig:  28°C

Sýrustig (pH): 8,2

Harka (gH): 20

Fóður: Þurrfóður, dafnía.

botn