|
|
Perlmutt Labidochromis ”Perlmutt”
Stærð: 7-9 cm
Kynin: Hængurinn er hvítleitur með dökk þverbönd og gulleitur eftir baki og í bakugganum. Ljós glampar á hliðar hans eins og perluskel. Hrygnan er gráhvít með þverbönd (neðri mynd).
Um fiskinn: Vinsæll búrafiskur frá tíunda tug síðustu aldar. Hængurinn er ekki ágengur á svæði frekar en hrygnan. Þarf rúmgott búr með mörgum steinum og felustöðum til að umhverfið líkist náttúrlegu heimili hans. Heldur sér í stórgrýti á 10-30 m dýpi. Fiskurinn finnst eingöngu í Mbamba Bay út af Ngkuyo eyju, Mara Rocks og Higga Reef í austurhluta Malavívatns.
Æxlun: Munnklekjari. Auðveldur í ræktun. Hrygnur og ungviði þurfa að geta leitað skjóls í hellum eða holum.
Búrstærð: 300 l
Hitastig: 28°C
Sýrustig (pH): 8,2
Harka (gH): 20
Fóður: Þurrfóður, dafnía.
|
|