toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FERSKVATN

ANNAÐ

Labidochromis ”Perlmutt” (Ngkuyo)

Perlmutt “Ngkuyo”
Labidochromis ”Perlmutt” (Ngkuyo)

Stærð: 8-9 cm

Kynin: Hængurinn er fölbláleitur með dökk þverbönd og gulleitur í baki. Ljós glampar á hliðar hans eins og perluskel. Hrygnan er gráhvít með þverbönd.

Um fiskinn: Nokkuð vinsæll búrafiskur frá tíunda tug síðustu aldar. Hængurinn er ekki ágengur á svæði frekar en hrygnan. Þarf rúmgott búr með mörgum steinum og felustöðum til að umhverfið líkist náttúrlegu heimili hans. Heldur sér í stórgrýti á 10-30 m dýpi. Fiskurinn finnst eingöngu í Mbamba Bay út af Ngkuyo eyju (neðri mynd) í austurhluta Malavívatns.

Æxlun: Munnklekjari. Auðveldur í ræktun. Hrygnur og ungviði þurfa að geta leitað skjóls í hellum eða holum.

Búrstærð: 300 l

Hitastig:  28°C

Sýrustig (pH): 8,2

Harka (gH): 20

Fóður: Þurrfóður, dafnía.

Perlmutt “Ngkuyo”
Perlmutt “Ngkuyo”1
botn