toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FERSKVATN

ANNAÐ

Labidochromis ”Red Top Mbamba Bay”

Red Top Mbamba Bay

Red Top Mbamba Bay
Labidochromis ”Red Top Mbamba Bay”

Stærð: 8-9 cm

Kynin: Hængurinn er dökkblár með sver svört þverbönd og gula eða rauðleita brún eftir bakugganum. Hrygnan er grá- eða brúnleit og vottar aðeins fyrir mynstri.

Um fiskinn: Nýlega farið að flytja þess tegund inn til að hafa í fiskabúrum. Hængurinn eignar sér svæði og ver gagnvart kynsystkinum. Þarf rúmgott búr með mörgum steinum og felustöðum til að umhverfið líkist náttúrlegu heimili hans. Heldur sér í grýttum grynningum á 5-15 m dýpi. Fiskurinn finnst í norðausturhluta Malavívatns við Tansaníuströnd út af Ngkuyoeyju (neðsta mynd) í Mbamba Bay. Skyldur L. “Luhuchi.”

Æxlun:
Munnklekjari. Auðveldur í ræktun. Hrygnur og ungviði þurfa að geta leitað skjóls í hellum eða holum.

Búrstærð: 300 l

Hitastig:  28°C

Sýrustig (pH): 8,2

Harka (gH): 20

Fóður: Þurrfóður, dafnía.

Red Top Mbamba Bay1
Red Top Mbamba Bay2
botn