toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FERSKVATN

ANNAÐ

Labidochromis caeruleus

Caeruleus
Labidochromis caeruleus

Stærð: 7-9 cm

Kynin: Hængurinn er ljósleitur með svarta rák eftir bakugganum (misáberandi eftir svæðum) og bláleitan glampa á hliðinni, enda merkir “caeruleus” blár. Hrygnan er alveg hvít (mið mynd). Svo til enginn útlitsmunur er á kynjunum. Bæði eru með einbrodda framtennur.

Um fiskinn: Hængurinn eignar sér svæði og ver gagnvart kynsystkinum. Þarf rúmgott búr með mörgum steinum og felustöðum til að umhverfið líkist náttúrlegu heimili hans. Heldur sér í grýttum grynningum niður á 10 m dýpi. Fiskurinn finnst við norðvestanvert Malavívatn hjá Chirombo Point, Lions Cove, Nkhata Bay og Ruarwe (neðsta mynd).

Æxlun: Munnklekjari. Auðveldur í ræktun. Hrygnur og ungviði þurfa að geta leitað skjóls í hellum eða holum.

Búrstærð: 300 l

Hitastig:  28°C

Sýrustig (pH): 8,2

Harka (gH): 20

Fóður: Þurrfóður, dafnía.

Caeruleus
Caeruleus1
Caeruleus2
botn