toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FERSKVATN

ANNAÐ

Labidochromis chisumulae

Chisumulae

Chisumulae
Labidochromis chisumulae

Stærð: 7-9 cm

Kynin: Grunnlitur beggja er hvítur. Hængurinn er ljósbláleitur en dekkri blár á baki og bláleitan glampa á hliðinni. Hann er með dökk þverbönd sem eru daufari á kviðnum. Hrygnan er rjómahvít (neðri mynd). Bæði eru með einbrodda framtennur.

Um fiskinn: Hængurinn eignar sér svæði og ver gagnvart kynsystkinum. Þarf rúmgott búr með mörgum steinum og felustöðum til að umhverfið líkist náttúrlegu heimili hans. Heldur sér í grýttum grynningum niður á 25 m dýpi. Fiskurinn finnst við norðaustanvert Malavívatn hjá Chisumulu-eyju út af Cobué.

Æxlun: Munnklekjari. Auðveldur í ræktun. Hrygnur og ungviði þurfa að geta leitað skjóls í hellum eða holum.

Búrstærð: 300 l

Hitastig:  28°C

Sýrustig (pH): 8,2

Harka (gH): 20

Fóður: Þurrfóður, dafnía.

Chisumulae1
botn