|
Flavigulis Labidochromis flavigulis
Stærð: 7-9 cm
Kynin: Frekar ílangur fiskur. Hængurinn er bláleitur með þétt dökk þverbönd og einnig þéttar langsum rákir. Hrygnan er brúngrá (neðri mynd). Bæði eru með gulleitan háls (sbr. heitið flavigulus) og einbrodda framtennur.
Um fiskinn: Hængurinn eignar sér svæði og ver gagnvart kynsystkinum. Þarf rúmgott búr með mörgum steinum og felustöðum til að umhverfið líkist náttúrlegu heimili hans. Heldur sér í grýttum grynningum niður á 3 m dýpi, sjaldan dýpra. Hængurinn grefur skurði í botninum og ver þá. Fiskurinn finnst við norðaustanvert Malavívatn hjá Chisumulu- og Likoma-eyju út af Cobué (neðsta mynd). Líkist L. strigatus. Sjaldan fluttir inn.
Æxlun: Munnklekjari. Auðveldur í ræktun. Hrygnur og ungviði þurfa að geta leitað skjóls í hellum eða holum.
Búrstærð: 300 l
Hitastig: 28°C
Sýrustig (pH): 8,2
Harka (gH): 20
Fóður: Þurrfóður, dafnía.
|
|